Marlin Manson Sjokkerar fólk.

Í þetta sinn vanvirti hann forseta Bandaríkjanna með því að krota “kommi” og teikna sæði sem synti í átt til eiginritunaráritunar Bill Clintons á vegg, á fínu kaffihúsi í Bandaríkjunum þar sem hann var að snæðingi með kærustu sinni, Rose McGovan og Sally Kirkland. Á staðnum “Café Des Artistes” í Los Angeles er veggur tileinkaður eiginritunaráritunum fræga fólksins. Manson gekk framhjá veggnum og sá nafn forsetans, tók túss og sprellað með fyrirgreindum hætti. Hann reyndi síðan að gera grein fyrir athæfi sínu og skýra málið með viskufullum orðum sínum. “Ef stjórnmálamaður myndi fá kjark til að segja ‘Ég er loddari, ég ætla að taka peningana ykkar, ég ætla að halda framhjá konunni minni, en ég mun gera mitt besta til að gera það sem þarf að gera fyrir land mitt’, Þá væri það maðurinn sem ég myndi kjósa. Af því að það það væri einhver sem væri hreinskilinn og væri ekki með einhvern skrípaleik til að reyna að blekkja þig.”
Oli :)