Undanfarið hef ég fylgst með umræðu á Simpson áhugamálinu um ýmsar endurbætur á því og einnig að bæta við þáttum, og þá fór ég að hugsa. Hvað með eitt stórt áhugamál fyrir sjónvarpsþætti ?

Þeir sem eru nú þegar, Simpsons og Startrek, mættu alveg halda sér og ef þættir yrðu mjög vinsælir í umræðum og þess háttar væri hægt að bæta við sér svæðum fyrir þá (eins og t.d. ofur vinsælir þættir eins Friends, Dharma&Greg og Ally McBeal svo einhver nöfn séu nefnd).

Þetta var svo sem bara hugleiðing, það væri gaman að heyra viðbrögð hugverja við þessu!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _