Pöntuðu pizzu í miðju innbroti

Lögreglan í bænum Bad Segeberg í Þýskalandi leitar nú innbrotsþjófa sem pöntuðu sér pizzu í miðju innbroti.

Þjófarnir tæmdu nokkrar skúffur í húsinu og ollu miklum skemmdum með slökkvitæki.
Þegar lögreglan kom á vetvang fundu þeir tóma pizzukassa rækilega merkta pizzustaðnum sem þeir pöntuðu frá.

Lögreglan hafði samband við veitingastaðinn sem gaf þeim upplýsingar um hvenær ránið var framið. Laganna verðir eru vissir um að þessar upplýsingar komi að góðum notum við að koma upp um glæpinn.