Ég veit ekki, ég ætti kannski að senda þetta beint inná “nöldur korkinn” en þar sem þetta varðar ekki huga ætla ég að freyst þess að senda þetta á forsíðuna.
Oki, það kom fyir mig núna í kvöld að mér var kickað á spjallrásini #iceland á irkinu, ekkert óvenjulegt, gerist að meðaltali 4 sinnum á viku, en í þetta skipti hneykslaðist ég á ástæðunni sem var gefin, jafnvel þó að góðar líkur hafi verið á því að hún hafi verið “djók”.
—————————————————————
[N] KICK [#iceland]: You were kicked by Merlhome (Djöfladýrkendur vinsamlegast haldið ykkur úti. Þessi rás er styrkt af Íslensku Þjóðkirkjunni. Well, ég fékk fermingjagjafir)
[N] To rejoin press F11.
[N] Cannot join channel #iceland (Banned)
—————————————————————-
Þetta fékk ég fyrir eitt lítið saklaust komment(“hreinar meyjar sem eru til í athöfn á fullu tungli msg me”). En það gildi einu hversu saklaus kommentinn var, það að ég er ekki satanisti heldur trúleysingiskiptir ekki máli, né með hversu léttu móti á að taka þessari ástæðu, því MAÐUR MISMUNAR EKKI FÓLKI EFTIR TRÚARBRÖGÐUM HVER SVO SEM ÞAU ERU. Um þetta hafa verið sett lög, alþjóðlegir sáttmálar og hefði ég verið meðlimur í trúfélagi hefði þetta jaðrað við brot á 125. gr. almennra hegningarlaga.

Mér finnst svona hegðun með öllu móti óafsakanleg og ætti manneskjunni að vera refsað fyrir, en líkur á því að einhverjir eftirmálar verði af þessu fyrir viðkomandi eru litlar, því að hann er að mér skilst meðlimur í stjórn isirc.

Jæja, ég vil því tilnefna Merlhome sem “Hitler ársins 2002”