VÁÁÁÁÁ!!! Þetta er hrein upplifun. Ég mæli eindregið með því að þið kíkið á STOMP sýninguna sem er í Háskólabíó þessa dagana. Þótt að verðið á sýninguna virðist vera hátt, þá er þetta hverrar einustu krónu (og aurs) virði. Ég hafði séð smá af þessu í sjónvarpinu, en að sjá þetta á sviði …. VÁ, ég get varla lýst þessu. Ég þurfti nokkra Tuborg til þess að róa taugarnar eftir sýninguna. Það er alveg ótrúlegur kraftur, húmor og skemmtun í þessari sýningu. Ekki klikka á þessu einstaka tækifæri að fara á þetta, á meðan þetta er sýnt hér á Fróni. (hmmm … það mætti halda að ég fengi borgað fyrir þessa grein :) ). HREIN SNILLD!!!