Keppnin í dag var með þeim skemmtilegri á tímabilinu þó hefði hún nú verið skemmtilegri ef Schumacher hefði náð að klára. En þetta sýnir að David Coulthard á fullt erindi í toppbaráttuna.Einnig var gaman að sjá hversu þyrstur hann var í að ná 1. sætinu, þetta er eitthvað sem að Hakkinen mætti taka til athugunar svona til að gera stigakeppnina enþá meira spennandi. Nú eru aðeins tvær vikur í næstu keppni sem fram fer í Austurríki og vonandi verður jafn hart barist um fyrstu sætin þá..