Í kappræðunum sem að fóru fram í gær í beinni útsendingu mátti greinilega sjá að Gore var mun sterkari heldur en Bush og held ég að hann muni sigra þessar kosningar útaf þessari glæstu frammistöðu sinni í gær. Bush var einfaldlega ekki með nægilega skýr og góð svör og gat Gore oft kýlt hann í magann án þess að hann gæti svarað fyrir sig, reyndi bara að snúa eitthvað útúr með svörum eins og að Gore væri að reyna að hræða kjósendur með einhverri tölfræði en gat svo ekki svarað neitt betur…

Eftir að hafa horft á þetta í gær held ég að Gore sé betri kostur sem næsti forseti bandaríkjanna!
Nei engin undirskrift hjá mér