(Ok þið fyrigefið að ég skuli senda inn AÐRA grein en ef ég hefði skrifað f. neðan upphaflegu greinina hefði enginn lesið þetta!)

Þetta er langt frá því að vera að ganga og ég vildi bara fá þetta á hreint!

Ultima, höfundur greinarinnar vildi greinilega finna e-n með vald til að gera e-ð en fólk hefur verið að stórmisskilja þetta allt saman!!! Ég er búin að lesa sama kjaftæðið aftur og aftur; Drepum fíbblið, skjótum hann, (Finnst ykkur það virkilega sniðugt???)nafnabirtingar og hreinir útúrsnúningar úr greininni! Svo er endalaust verið að votta stúlkunni samúð, ok það er ekkert að því, það er bara það, að sá var ekki tilgangurinn með greininni. Stúlkan þarf stuðning almenningsins/okkar mikið frekar en vorkunn!

Svo virðist sem allir séu að leita að einhverjum til að stíga fyrsta skrefið en face it u guys, það er enginn hér á huga búinn að svara greinninni (af rúml. 3000!) sem hefur sagst geta farið niður í bæ, safnað undirskriftum og komið þeim til réttu aðilanna.
Persónulega veit ég að það get ég ekki en vildi ekkert frekar þessa dagana en getað breytt dómnum. En þar sem enginn ætlar að gera neitt í þessu ætla ég bara að spyrja; “Er eihver með virkileg völd til þess að gera e-ð???”

Ef ekki vil ég bara bjóða mig fram til að safna þessum undirskriftum sjálf, og gera allt í mínu valdi til að koma þeim til skila! Ef einhver hefur áhuga (alvöru áhuga, ekkert gefast upp á síðustu stundu!) Og í um helgina, laug. eða sunnudag, ef við höfum safnað upp nógum fjölda, þá getum við farið, gert okkar besta og séð svo til hvernig við komum listunum til skila!
(Ekki segja að ég sé bjartsýn eða e-r andsk.. ég hef engin önnur ráð!)

Lena M. Aradótti