Sem ég fletti fréttablaðinu í vinnunni, rakst ég á grein sem vægast sagt lét mig missa matarlistina og reitti mig allsvakalega til reiði.
Í ágúst 1999, nauðgaði 23 ára maður 17 ára gamalli stelpu svo hrottalega að þegar hún kom á neyðarmóttöku, mátti ekki snerta stúlkuna, þar sem hún var svo aum og sár, allstaðar á líkamanum. Þetta var það hrottalegasta og ömurlegasta nauðgunar tilfelli sem fólk þar á bæ hafði séð. Henni var ekki aðeins nauðgað hrottalega heldur lét þessi viðbjóðslegi nauðgari hana meðal annars éta skítinn úr sjálfum sér, hann fláði húðina af henni með ostaskerara, þegar hún vildi fara í bað, henti hann henni undir brennandi heita sturtu og barði á meðan, hann hótaði að brjóta á henni báða fæturna ef hún reyndi að flýja, hann nauðgaði henni ítrekað að aftan og framan, sett glasahaldra upp í leggöngin á henni osfr.(Þessi vitneskja mín er úr fréttablaðinu, síðasta miðvikud. 4. júlí.)Ég ætla ekki að fara að rekja þetta neitt meira, en allavega þá hefur þessi viðbjóðslegi aumingi skaðað líf þessara ungu stúlku umtalsvert. Þessi aumingi fékk svo dóm núna um daginn, hann fékk hann núna því að hann flúði til Svíþjóðar í eitt ár, að ég held, og ekki var því hægt að hafa uppá honum. Í réttarhöldunum sem voru haldin í þessu máli, þá fékk þessi viðbjóður aðeins 3 ÁR!!!!!!! ÞRJÚ ÁR, hann gersamlega eyðileggur líf einhvers og kemst upp með það. Það er bara grín, að manneskja sem hefur gert annað eins fái ekki lengri refsingu en þetta, meðan einhverjir dópinnflytjendur eru að fá hvað, 14-16 ára dóma. Ég er ekkert að gera lítið úr dópvandanum. en í guðnna bænum, það er þitt val að fara og fá þér í haus, eða fá þér í nös, burt séð frá því að þú sért orðin háður þessu. Það er ekki þitt val og snýst ekki um neitt val að vera nauðgað, hvað þá jafn hrottalega og þetta var.Það þarf all verulega að endurskoða refsingar við brotum af þessu tagi. Því það er skandall að þessi maður fái einungis þriggja ára fangelsi fyrir gjörðir sínar. Hann verður gangandi meðal okkar eftir 3 ár, ef ekki fyrr. Þetta er hættulegur glæpamaður sem á frekar heima á geðspítala en úti í samfélaginu. ÉG VIL TAKA ÞAÐ FRAM AÐ ÉG TENGIST EKKI NEINUM MÁLSAÐILA, ER BARA MJÖG REIÐUR OG SJOKKERAÐUR EINSTAKILINGUR, SEM HÉLT AÐ LITLA EYJAN LENGST ÚTÍ RASSGATI VÆRI LAUST VIÐ SVONA VIÐBJÓÐ,EN MAÐUR ER SVO GRUNNUR!!!