Hvað er í gangi á þessu blessaða Skeri okkar þegar íslenskir ríkisborgarar af erlendu bergi brotnu geta ekki gengið (tekið strætó) án þess að verða fyrir aðkasti (sjá frétt á Visi.is 5.09'00)
Hver djöfullinn er í gangi heima (er búsettur erlendis)?
Segið mér endilega, kæru landar, hver afstaða ykkar er til nýbúa.
Það þykir mér aum staða ef “við” afkomendur fólks sem flúði ofsóknir fyrr á öldum skulum geta komið svona fram við fólk sem einungis hefur annan hörundslit en við.
Tökum nú á þessu áður en þetta verður alvarlegt vandamál!
www.facebook.com/teikningi