Það er eitt sem ég skil ekki

Hvernig í fjáranum þið nennið að hanga fyrir framan tölvuna allann sólarhringinn
mér finnst alltílagi að setjast fyrir framan skjáinn í svona 2 klukkutíma en að gera ekkert annað allan daginn það er svolítið brjálæðislegt svo ég minnist nú ekki á kostnaðinn við það að hanga svona á netinu fyrir þá sem eru ekki með adsl eða þvíumlíkt

setjum það svona ég er með 145 stig og er búin að vera meðlimur frá byrjun og Vinir mínir segja að ég hangi of mikið fyrir framan tölvuna en vá þúsund og eitthvað stig er ekki allt í lagi og svo fólkið sem rembdist við að komast yfir 1000 stig til að fá geisladisk sem kostar 2000 kall útí búð (það greinilega spáði ekkert í því hvað miklum tíma það eyddi í það) og það diskur með Moby einum ofspilaðasta tónlistarmanni sögunnar kræst

Ég held að þið ættuð að spá aðeins í hlutina áður en þið endið upp með músarúlnlið og nærsýni vegna setu of nærri skjánum trust me these things happen