Ég legg til að allir sem eru orðnir drulluþreyttir á yfirgangi Stöðvar 2 sendi mótmælabréf vegna auglýsinga í miðjum þáttum.

Ég sendi eftirfarandi bréf á postur@ys.is og ég vona að flestir sendi svipað bréf.

subject: Burt með auglýsingarnar - frá hugi.is

Efni: Burt með auglýsingar í miðjum vinsælum þáttum. Það er megn óánægja með ykkar stefnu í auglýsingum. Vinsamlegast skoðið skoðanir manna í greinum á forsíðu á hugi.is og stöðvið þessa vitleysu. Það finnst ekki nokkur áhorfandi sem gæti verið ánægður með þetta. Þetta er hinn mesti yfirgangur.