Mér finnst að fyrir svona stuttar og efnislitlar greinar, eins og F1 áhugamenn hafa aðallega verið að senda inn, ættu frekar heima á “korkunum” hérna á huga.

Og annað. Þið virðist vera alveg brjálaðir yfir því að blaðamannafundurinn var ekki sýndur eftir Formúluna um helgina útaf EM2000. Jæja, eru blaðamannafundir eftir fótboltaleiki einhverntímann sýndir í beinni? Öll keppnin var sýnd í beinni og blaðamannafundurinn var sýndur seinna um kvöldið. Hugsið þetta svona, fótbolta áhugamenn misstu ef ég man rétt 20 mín. af leiknum, ekki hafa heyrst læti frá þeim. Hættið núna svona stælum og farið með þetta frekar á korkana. (þó ég ráði nákvæmlega engu hérna er þetta mitt álit og margra annarra)