Ég set þessa grein á forsíðu þar sem að það er ekki nein Black&White áhugamálssíða (hint).

Þessi leikur er hreinasta snilld, allt við þennan leik er það sem á að einkenna góðan og skemmtilegan jafnframt krefjandi leik.

Ýmis konar atriði gera þennan leik betri heldur en alla aðra leiki sem út hafa komið enn sem komið er, flest þessara atriða eru smáatriðin en einnig er þessi leikur einn af þeim bestu ef ekki bestur í hefðbundnum samanburði (grafík og þvíumlíkt).

Smáatriði sem vert er að nefna:
1. ef þú notar Microsoft outlook eða önnur studd póstforrit heita íbúar þorpsins þíns þeim nöfnum sem þú er með í address bókinni í póstforritinu.
2. ef þú færð póst kallar viðeigandi þorpsbúi í þig og tilkynnir þér um sendinguna til þín.
3. á 1. apríl eru fótspor dýrsins þíns litlir “smiley” karlar.
4. þér eru boðin gleðileg jól á jólunum (25.des)
5. ef þú er að spila tónlist dansar dýrið þitt við tónlistina, ef óvart slæðist inn britney spears lag þá getur þú skammað dýrið þitt fyrir að dansa við það lag…smá saman lærir dýrið að þekkja “þína” tónlist og dansar við hana, en heldur fyrir eyrun þegar “leiðinleg” lög eru spiluð.
6. Samviskan þín fer að blaðra ef þú lætur leikinn vera í smá stund (screen saver)
og margt margt meira…

bj0rn - skemmtið ykkur vel