Í Bandaríkjunum er komin eins allsherjar tískubylgja í teinagerð. Krakkar með skakkar tennur eru með alla liti uppi í kjaftinum og redda sér með lituðum teygjum…mjög smart. Fyrir tveimur eða þrem árum var svo hægt að fá gegnsæja teina eða hvíta teina hérna á Íslandi en eftir tvo mánuði voru þeir orðnir heiðgulir og frekar ljótir. Þeir sem þurfa að láta rétta í sér tennurnar geta núna fengið gullteina og þannig fékk ég mér um daginn. Ég er ekki kölluð stálkjaftur og þetta er miklu huggulegra en stálvirkið sem allir eru með. Ég mæli eindregið með gullteinum.