Ég er búinn að spila Action Quake ansi lengi, næstum eins lengi og elstu menn muna :)
Í byrjun var Action Quake böggað og skemmtilegt, margir skemmtilegir spilarar voru á serverunum kvöld eftir kvöld, og eins og lög gera ráð fyrir þá urðu menn betri og betri spilarar,,
ég þori að fullyrða að ég hef spilað bæði með og á móti bestu spilurum Íslands, var meira að segja meðlimur hins fræga PhD clans um tíma, þannig að ekki er ég alveg glataður spilari.

Undanfarið hefur það aftur á móti orðið mér meira og meira áberandi mér til mikillar hrellingar að óþekktir spilarar ásamt spilurum sem hafa stundað AQ í frekar stuttan tíma eru orðnir óeðlilega hittnir..
það er ekki liðin 1 sekunda af roundinu þá er ég dauður,, og ég er ekki lélegasti spilarinn á serverunum..
Ég verð að viðurkenna að allskyns ljótar hugmyndir tóku sér bólfestu ú kollinum á mér,
grunur um botta notkun og fleiri svindlaðferðir og dusilmannavesen tóku að ágerast.
En alltaf blundaði í huga mér að ekki væri hægt að nota Botta á skjálfta serverum,,
eða hvað? Ég kíkti eitt kvöldið við á vef Rat clansins alræmda sem bjó til Aim Bottinn RatBot, og hvað? ,, jú, það var komin ný útgáfa af Rattinum,, ég downloadaði kvikindinu og prófaði að tengjast á skjalfti4.simnet.is,,, og hvað?.. hann svínvirkaði… ég fraggaði
hægri og vinstri,, (undir altnicki að sjálfsögðu) og enginn sagði neitt, samt var skrýtið að nokkrir einstaklingar voru mjög nálægt mér í frag fjölda.. og það menn sem hafa ekki verið mjög öflugir þartil fyrir nokkrum dögum/vikum…hvað skyldi það þýða? svari nú hver fyrir sig…
Mér er alveg sama þó einhverjir fari að væla og skammast, ég er búinn að spila Action Quake það lengi að ég þekki bott þegar ég sé hann í notkun,, bæði hef ég notað þá sjálfur á LANs go séð aðra nota þá, það er ekkert eðlilegt að sjá óþekktan eða lítið þekktan spilara með 30 frags á móti mörgum af bestu spilurum landsins..það hef ég séð gerast oftar og oftar upp á síðkastið. Einnig má geta þess að gömlu Ratbottarnir virka vel á Arena serverunum, þannig að ég myndi ekki taka clanmatch þar ef ég væri þið.. það er verið að eyðileggja Action Quake serverana með þessu rugli….

Ergo.
Fólk er byrjað að nota AimBotta á skjálfta serverunum, og hefur kannski gert það í einhvern tíma,,? hver veit,.Sjálfsagt gerir þessi grein það að verkum að þeir sem eru að nota Botta undir eigin nickum hætta því núna..? því ef/þegar p1mpar setja inn vörnina þá vill sjálfsagt enginn láta sparka sér af servernum fyrir botta notkun.