12 ára bið Lakers á enda. Leikmenn Los Angeles Lakers tryggðu sér NBA meistaratitilinn eftir að hafa sigrað Indiana í sjötta leik liðana í úrslitum. Úrslit leiksins urðu 116-111 Lakers í vil.
Stjörnuprýtt Lakersliðið hafði þótt sigurstranglegast við upphaf keppnistímabilsins og flestir spámenn voru á því að Lakersmenn mundu taka með sér bikarinn heim eftir tímabilið.
Þetta er fyrsti meistaratitill hins reynslumikla og fjölhæfa miðjumanns (á flestum sviðum)Shaquille O'Neal. Einnig er þetta fyrsti titill þjálfarans Phils Jacksons án Michaels Jordan. Phil hefur sínt það og sannað með þessum titli að hann sé einn af snjöllustu þjálfurum NBA.
Dreitill Dropason esq.