Svo kann að fara að Lotus merkið muni sjást á ný í Formúlunni. En samkvæmt frétt breska blaðsins Sunday Telegraph, er David Hunt, sem er bróðir James Hunt fyrverandi Formúlu-1 ökuþórs, að leita eftir kaupum á Prostliðinu.

Ef kaupin ganga eftir þá mun hið nýja lið verða nefnt Lotus-liðið en það er þekkt og frægt liðsnafn úr Formúlunni frá árum áður.

Eitthvað er samt á reiki um það hverjir séu réttmætir eigendur á Lotus nafninu, en David Hunt fullyrðir að það sé í sinni hendi.
-sphinx-