Í tilefni af 100 ára afmæli Ajax í Hollandi heldur félagið mót í Amsterdam. Fjögur lið taka þátt í mótinu en þau eru, auk Ajax, Barcelona, Arsenal og Lazio. Stigagjöf mótsins er ekki með hefðbundnum hætti, en lið fá 3 stig fyrir sigur, 1 fyrir jafntefli og ekkert fyrir tap, en eitt stig er gefið fyrir hvert mark sem lið skorar. Í dag voru tveir leikir, Ajax og Lazio gerðu markalaust jafntefli og Barcelona vann Arsenal 2:1. Barcelona eru því efstir með 5 stig, og Ajax, Lazio og Arsenal eru öll með 1. Mótinu lýkur á laugardag en þá mætast Barcelona og Lazio annars vegar og hins vegar Ajax og Arsenal.