Það hefur komið mér á óvart hve mikið er af nasistum, rasistum og útlendingahöturum á Huga. Kannski þykir þeim gott að skríða upp úr holunum sínum undir dulnefnum.

En íslenskir rasistar hafa það ekki gott. Greyin litlu verða að vera sérstaklega hugmyndaríkir til að finna upp á innflytjendavandamáli á Íslandi og það er merkilegt að fá að fylgjast með því hvað þeir telja vera stæstu vandamálinn. Einhver fór út í sjoppu og starfsmaðurinn þar skyldi hann ekki. Greyið litla. Reyndar eiga flestir þessir tísku-nasistar sem eru að tjá sig hér um þetta tilbúna “innflytjendavandamál” erfitt með að skrifa almennilega íslensku. Á að reka þá úr landi? Þeir eiga erfitt með að aðlaga sig menningu þessa siðmenntaða þjóðfélags sem við búum í. Eigum við að hreyta í þá ónotum úti á götu? Nei það væri nú ekki fallega gert af okkur. Ég býst við því að þeir séu allir á fermingaraldrinum og eigi hvort eð er eftir að vaxa upp úr þessu.

En ég er alls ekki að biðja þessa drengi að skríða aftur ofan í holurnar sínar. Með skrifum sínum hér, sýna þeir okkur hinum hvað þessar hugmyndir þeirra eru heimskulegar.