Futurama eru snilldarþættir, þótt pilotinn beri af í þeim efnum.<p>Hins vegar er rétt að benda mönnum á að þættirnir 3rd Rock From The Sun voru sýndir hér á Íslandi fyrir nokkrum misserum, og þá á hinni sálugu Stöð 3, sem margir sakna eflaust sökum afskaplega vandaðs erlends sjónvarpsefnis. Ég hvet nú innkaupastjóra erlends efnis hjá einhverri innlendri stöðinni (og þá helst Stöð 2, sem keypti jú Stöð 3 í denn), til að kynna sér þessa vönduðu þætti, 3rd Rock og Futurama og íhuga að sýna þá íslenskum almenningi.
——————————