Nokkrir vinir mínir og ég fögnupu ákaft þegar tal byrjaði með brandaraþjónustu sína (fyrir þá sem ekki vita þá er hægt að senda sms sem í stendur GRIN í númer 1415 og fá sendan til baka brandara) við höfðum mjög gaman af þessu um tíma en síðan þá kom babb í bátinn það komu engir nýjir brandarar. Það eru víst bara um 50 brandarar í umferð og þegar maður er búinn að sjá þá er gamanið búið, engin update eða neitt bara búið, einsog að það sé ekki hægt að kíkja aftaná andrésblöð eða séð og heyrt og finna fleiri brandara. Þess má einnig geta að þessir brandarar eru flestir fyrir neðan andrésblaða standardinn (sem er alls ekki hár) sumir brandararnir eru líka frekar grófir dæmi: “mamma, mamma gunni bróðir er alltaf að sprauta á mig!!! Sprautaðu bara á hann til baka. Ég get það ég er stelpa!!!”
Ég lýk máli mínu