Í dag mættu KR-ingar Brøndby-mönnum í forkeppni meistaradeildar Evrópu. Leikurinn fór fram á glæsilegum leikvangi þeirra Brøndby-manna í Kaupmannahöfn. Danirnir komu sterkir til leiks og komust yfir strax á 13. mínútu. KR-ingar jöfnuðu aðeins fimm mínútum síðar og var það Einar Þór sem skoraði með glæsilegu skoti rétt utan vítateigsins, í stöngina og inn. Staðan var 1:1 í hálfleik. Það voru svo tvö ódýr mörk sem tryggðu Brøndby mönnum 3:1 sigur í þessum leik.