Var að ferðast eins og margir aðrir Íslendingar um helgina. Mér blöskraði bókstaflega hvernig sumir ökumennt keyrðu. Sérstaklega þótti mér ískyggilegt hvernig ökumenn með hjólhýsi í ýmsum stærðarflokkum þeystu áfram. Þeir létu sér ekki muna um að taka fram úr á svimandi ferð þannig að hjólhýsin dingluðu eins og pendúlar aftan úr bílunum. Með þessar græjur í eftirdragi keyrðu þeir mun hraðar en löglegt er þ.e. yfir 80 km hraða og stofnuðu lífi og limum annarra vegfaranda í mikla hættu. Ég hvet þessa ökumenn til að gæta að sér og stilla hraðanum í hóf.