Þar sem þessi banner er búinn að vera í svolítinn tíma og það er alltaf stuð að breyta til höfum við stjórnendur ákveðið að efna til bannerkeppni.

Reglur:
-Stærð þarf að vera 629x107
-Innlegg skulu send inn sem mynd á myndakubbinn
-Titill þarf að innihalda orðið “Bannerkeppni”
-Bannerinn þarf að tengjast áhugamálinu, sem sagt hafa flúr, gat eða extreme mods og/eða tól og tæki tengt þessu.
-Bannerinn má ekki vera of grófur, ekki innihalda blóðug og nýgerð extreme mods.

Seinasti dagurinn til þess að senda inn banner er 31. janúar og fara kosningar í gang 1. febrúar. Sá banner sem sigrar verður nýi banner áhugamálsins.