Myndakeppnir eru alltaf svo skemmtilegar og því ákváðum við stjórnendur að það væri kominn tími á eina slíka.

Í þetta skiptið er keppt um flottasta litaflúrið. Það má vera af öllum stærðum og gerðum, svo lengi sem það er á ykkur og það eru litir í því.

Reglurnar eru einfaldar eins og venjulega: Myndin þarf að vera af ykkur og það þarf að standa “Myndakeppni” í titlinum. Lokafrestur til að senda inn myndir er fimmtudagurinn 29. júlí og fara kosningar í gang daginn eftir, eða föstudaginn 30. júlí.

Við vonumst til að sem flestir taki þátt!

Fyrir hönd stjórnenda,
myhateisyourpain.