Lokuð-Myndakeppni! Jæja ljúflingarnir mínir. Nú teljum við stjórnendur kominn tíma á myndakeppni. Í þetta skiptið snýst keppnin um flottustu eyrnagat og það eina sem þið þurfið að gera er að fá einhvern hressan til að taka mynd af eyrunum ykkar. Það má bara senda inn eina mynd en það er í lagi að taka mynd af báðum eyrunum, splæsa þær saman í eina og senda svo inn.

Frestur til þess að senda inn myndir er til 15. apríl og kosningar hefjast svo 16. apríl. Til þess að myndin sé gjaldgeng í keppnina þarf orðið “Myndakeppni” að koma fyrir í titlinum.

Við hvetjum alla til að taka þátt því að vinningurinn er 100 stig og gjafabréf sem hægt er að nota upp í götun (hafi sigurvegari náð 18 ára aldri) eða lokka hjá Beggu á Íslenzku Húðflúrsstofunni!