Að gefnu tilefni vil ég taka fram að það er litið mjög slæmum augum að einstaklingar bjóðist til að gata og flúra ólögráða einstaklinga á þessu áhugamáli. Þessi vettvangur er fyrir umræður og ábendingar um þennan lífsstíl. Það getur endað með leiðindum, veseni og jafnvel kærumáli ef að einstaklingur gata og/eða flúra ólögráða barn, ekki bara á hendur gatarans heldur einnig á hendur okkar sem halda þessu spjalli uppi. Við kærum okkur ekki um að lenda í slíku. Því hefur þeirri reglu að slíkir þræðir séu bannaðir með öllu.

Ég vona að þið virðið það.