Nú er svo komið að KronoZ er hættur sem stjórnandi á þessu áhugamáli og okkur vantar því einhvern hæfan til að taka þátt í þessu með okkur. Ég vil um leið þakka KronoZ fyrir unnin störf.

Hæfniskröfur:
-Að hafa áhuga og vit á því sem áhugamálið snýst um.
-Að hafa nokkuð gott vald á málfræði og stafsetningu.
-Að hafa náð 18 ára aldri.

Seinasta krafan er sett af stjórn huga.

Ég hvet áhugasama til þess að sækja um!

Linkur fyrir umsókn: http://www.hugi.is/hudflur/bigboxes.php?box_type=adminumsokn

Bætt við 10. maí 2009 - 22:18
Ég þakka þeim sem sóttu um, en Nathan hefur verið tekinn inn í stjórnendahópinn.