Við stjórnendur á Húðflúr og Götun höfum ákveðið að halda myndasamkeppni. Keppt er um flottasta gatið og eru allir hvattir til að taka þátt! Til að taka þátt sendið þið inn mynd, og þegar fresturinn er runninn út verður gerð skoðanakönnun með nöfnun innsendanda sem valmöguleika.

Reglur:
-Aðeins ein mynd á notanda. Hafi notandi sent inn mynd og reynir að senda inn aðra verður þeirri seinni hafnað.
-Í titli verður að standa “Myndasamkeppni” en ykkur er frjálst að hafa titilinn lengri. Þetta verður þó að koma fram. Annars er myndin ekki tekin gild sem innlegg í keppnina.

Fresturinn rennur út að kvöldi til þann 4. nóvember. Að morgni 5. nóvember fara kosningar í gang.

Endilega allir að vera með!

Bætt við 31. október 2008 - 19:50
Vegna misskilnings sem hefur komið upp vil ég benda á að það er ætlast til að fólk sendi mynd af sjálfu sér en ekki öðrum. Keppnin snýst um hvaða notandi sé með flottasta gatið, ekki hvaða notandi á vin eða vinkonu með flottasta gatið.

Takk fyrir.