Ég var að renna yfir nokkra þræði á þessu áhugamáli og eyða kommentum eftir nokkra spammara. Ég tók eftir því að þið hafið ekkert verið að svara þeim sem eru að spamma hérna og með leiðindi og dónaskap, og mig langar að þakka ykkur fyrir það. Á endanum gefast flestir upp ef þeim er ekki svarað og því eru þetta hárrétt viðbrögð hjá ykkur og því hvet ég ykkur til að sleppa því að svara spömmurum yfirhöfuð.