Góðan daginn kæru Hugarar til sjávar og til sveita.

Peran kallast ég og var valinn á dögunum í stjórnunarteymi þessa áhugamáls. Ég þakka samstarfsfélögum mínum traustið og vona að geti lagt mitt á vogarskálarnar til að gera áhugamálið líflegra og skemmtilegra. Ég byrjaði að fá mér tattú fyrir 13 árum síðan og er hvergi nándar hættur. Ég grúska mikið í blöðum, bókum og á netinu til að afla mér visku um flúrara og stefnur hvaðanæva úr heiminum. Vonandi skilar áhugi minn sér vel inn á öldum ljósvakans og vonandi nennir einhver að lesa vitleysuna eftir mig.

Ég hef ákveðnar skoðanir um hvað ég vil sjá hérna inni og vonandi fær það samhljóm meðal hinna stjórnendanna. Nú þegar hef ég sett inn nokkra hlekki á inkednation-síður Íslendinga og hef sent spurningalista á tvo einstaklinga sem gaman verður að lesa um. Þeir eru báðir af íslenskum ættum en vinna við að flúra erlendis.

Einnig er ég mikill pervert í Skandinavíska flúrara og ætla að reyna að ná í skottið á þeim sem hafa sópað að sér verðlaunum á festivölum nágrannalandanna.

Með von um bjarta tíma.

PERAN
______________________________________