Mig langar til þess að benda á að myndirnar sem fólk sendir hingað inn af sínum eigin húðflúrum eru algjörlega í eign viðkomandi og copy/paste af nákvæmlega eins flúrum eru ekki vinsæl :)

Það er gaman að sýna sín eigin flúr og sjá önnur en auðvitað fylgir alltaf sú hætta að myndunum gæti verið stolið og farið með þær á næstu tattoostofu til þess eins að fá sér nákvæmlega það tattoo. En í svona litlu samfélagi viljum við ekki að það viðgangist, ekki satt? ;)
Svo verum heiðarleg og virðum aðra :)

Og endilega haldið áfram að sýna flúrin ykkar, það er svo gaman að sjá! :þ

Kveðja PraiseTheLeaf