Notendanafn á Huga?: myhateisyourpain.
Kyn?: Karlmaður.
Aldur?: 21 árs.
Fjöldi húðflúra?: 8.
Hvernig húðflúr ertu með og hvar (ef þú ert með)?: “Hate” skrifað í rúnum á puttana á vinstri hendi, “Einn kaldan takk” skrifað í rúnum á hægri úlnlið (þar stóð áður Alda, en við hættum saman svo ég varð að redda því einhvern veginn :p), stjörnumerkið mitt á innanverðum hægri framhandlegg, afskorinn litli putti í tutu-pilsi með borða yfir sér sem á stendur “Pinky” á vinstri framhandlegg, gamlan mann sem er búinn að hengja sig og er með skilti um hálsinn sem á stendur “You can't fire me I quit” á vinstri upphandlegg, nafn yngsta bróðir míns vinstra megin á brjóstkassanum, Sunn O))) logoið á milli herðablaðanna og úlfshaus með dagsetningum undir á hliðinni á hægri kálfanum.
Hver gerði húðflúrið þitt/húðflúrin þín?: Vincent gerði “Alda” í rúnum, nafn bróður míns og stjörnumerkið, Jón Þór gerði hinar rúnirnar, Svanur gerði úlfinn og puttann, Patrick Swan gerði hengda gaurinn á fyrstu tattoohátíðinni og Ingi gerði Sunn O))) logoið.
Hvað varstu gamall/gömul þegar þú fékkst þitt fyrsta húðflúr?: 17 ára.
Uppáhalds húðflúrari?: Jón Þór, Ingi og Svanur.
Uppáhalds húðflúrstefna?: Engin sérstök stefna.
Langar þig í húðflúr/fleiri húðflúr, og þá hvernig?: Já, ætla að fá mér Óðinn sitjandi í útskornu viðarhásæti með Huginn og Muninn sitjandi á sitthvorri öxlinni og Freka og Gera sitjandi sitthvorum megin við sig. Þetta verður backpiece.
Ef þú gætir valið einn flúrara til þess að láta flúra þig, hver myndi það vera?: Ég hef engan ákveðinn í huga.
Ertu skráð/ur á Inked Nation?: Nei, en ég er skráður á bodymod.org.
Fjöldi líkamsgata?:[/b 14.
Hvernig líkamsgöt ertu með og hvar (ef þú ert með)?: 20mm tunnel í báðum sneplum, 2nd lobe í báðum eyrum, industrial í vinstra eyranu, helix í því hægra, 3 í vörinni og eitt af þeim er 2.5mm því ég er að stækka það, í báðum nasavængjum, septum, vinstri augabrún og hægri geirvörtu.
Langar þig í göt/fleiri göt og þá hvernig?: Langar í hina geirvörtuna og sennilega eitthvað fleira. Er alveg í erfiðleikum með að ákveða hvað ég vil láta gata.
Hefurðu gatað þig sjálf/ur eða látið einhvern ófaglærðan gera það?: Nei.
Uppáhalds “piercer”?: Sessa.
Ertu með/hefur þú áhuga á extreme mods?: Já. Hef mikinn áhuga og er með klofna tungu. Stefni einnig á implants í handlegg og langar að fá mér horn-implants en efast um að ég láti verða af því þar sem ég yrði sennilega rekinn úr vinnunni og fengi hvergi aðra vinnu.
Hefurðu sent inn grein á áhugamálið? Ef ekki, er það á planinu?: Já, það hef ég gert.
Er eitthvað sem vantar á þetta áhugamál eða mætti betur fara?: Þið verðið þá bara að láta mig vita.