Ætla að fá mér þetta tattú einhverntíman :) á úlnliðinn, að ofanverðu, vona að ég sé að útskýra þetta rétt, semsagt fyrir neðan handarbakið. Þetta er svokallað ambigram, hvort sem það snýr upp eða niður getur maður lesið það sama úr því.
Ég hef verið með 10mm göt í eyrunum í rúmlega hálft ár núna.. fyrst fannst mér þau passlega stór.. en svo með tímanum þá “minnka” þau fyrir sjálfum mér… svolítið pirrandi þar sem ég var búinn að ákveða að segja STOP.
Jæja þetta eru mín göt, er samt ekki með eyrnalokka í neðstu lobe. og er núna búin að taka eitt helixið út útaf smá sykingu, er samt að pæla að stinga aftur í gegn eða bara láta gróa og gata aðeins fyrir neðan (semsagt það er neðra helixið með vandræði)
Ég er þessa stundina að skoða dót eftir Bandaríkjamann sem kallar sig Poohki (Púki). Ég hitti hann í Minneapolis fyrir nokkrum árum þar sem ég var að fá mér tattú. Hann er af íslenskum ættum og tók upp nafnið þegar hann fór að tattúvera. Ástæðan sú að íslenskur afi hans kallaði hann alltaf “litli púki”…
Þessa dagana er ég að endurvekja kynni mín af Brandon Bond. Ég sendi nokkrar myndir hingað inn eftir hann hér í gamla daga. Skoðið dótið hans - hann er geggjaður!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..