Nýja flúrið mitt. Ég er búin að vera pínu treg við að senda þessa mynd því tærnar mínar eru ekki þær fallegustu sem til eru, en ég lét verða af því.
En anywho, þetta er 3 flúrið mitt og ég er bara mjög sátt með það. Ég og móðir mín fórum saman á Tattoo og Skart og fengum okkur alveg eins (þetta var fyrsta hennar). Merkingin á bakvið flúrið er einfaldlega að við elskum hunda :)
Náunginn sem flúraði okkur er danskur og er eins og er gestaflúrari hjá þeim á ToS. Mæli eindregið með honum.
||