Dermal Anchor Ég fór á Tattoo ráðstefnu í Malmö um helgina og las að Muffe frá Copenhagen Body Extremes yrði þar svo ég sendi honum email og spurði hvort hann yrði að gata e-ð á ráðstefnunni. Svo virtist ekki vera en hann bauðst samt til að taka með sér græjur svo hann gæti gert e-ð á mig.. Ég neitaði því auðvitað ekki og ákvað að fá mér Dermal ;)
Ég fann lítið sem ekkert fyrir þessu og er ég alveg hæstánægð með þetta :þ Ég hef lengi ætlað að fá mér Dermal Anchor og að fá það gert af Muffe er ekki leiðinlegt enda er hann og hefur verið minn uppáhaldsgatari/body moddari í langan tíma :) Mæli eindregið með honum ef þið eigið leið í Kaupmannahöfn einhvern daginn
http://www.chbe.dk