Bakið mitt, session 2 Jæja, svona lítur bakið á mér út at the moment. Ég fór 11. september, eða fyrir 11 dögum síðan, svo þetta er ekki alveg 100% gróið. Þetta tók 4 klukkutíma og var eiginlega bara ógeðslega vont! Það gæti hafa haft eitthvað að segja að ég var að byrja á blæðingum þegar ég var í sessioninu. Ég spændi í mig íbúfen en var samt farin að fá skjálfta í hand- og fótleggi á fjórða tímanum. Ég hélt að ég væri harðjaxl, en ég þarf greinilega að endurskoða það :/ Fyrir þá sem vilja sjá hvað þetta allt saman þýðir og hvernig þetta leit út eftir 1. session, sjá grein:
http://www.hugi.is/hudflur/articles.php?page=view&contentId=5879226