Tie-off tounge split dagur 3 Girnið er að sökkva inn í tunguna, notaði eyrnapinna til að hífa það frá og rífa þannig upp þann vef sem reynir að græða tunguna aftur. Er búinn að vera með stöðugt blóðbragð í munninum síðan, en óþægindin gera ekki mikið vart við sig lengur, bara pínu eymsli í tungunni sem er stöðugt til staðar.
Sé ennþá töluverðan árangur frá degi til dags, en sé á dagbókarfærslum annarra um svona aðgerð að eftir 5 daga fer að líða meira á milli að maður sjái árangur.
Broddurinn er orðinn klofinn nokkra mm og er strax byrjaður að gera æfingar í að láta annan þeirra titra í einu og gengur bara mjög vel.
Get ekki beðið get ekki beðið get ekki beðið