Tie-off tounge split dagur 2
Jæja, girnið er byrjað að skerast inn í tunguna, sársaukinn hefur aðeins dalað og á auðveldara með að tala eðlilega aftur. Held mig samt við fljótandi fæði aðeins lengur áður en ég legg í steikur og snakk, og hvað þá saltlakkrís.
Óþægindin eru í raun mest rétt eftir máltíðir og ef ég hósta, en no pain no gain og tunguklofningin er sko allara þessa óþæginda virði.
Maður er strax farinn að sjá smá skurð eftir tungunni ofanverðri og tungubroddurinn er rétt að byrja að deilast.
Með hverjum millimetranum eykst tilhlökkunin til muna og ég get varla beðið þar til eftir 2-3 vikur þegar haftið á milli tunguvöðvanna gefur sig alveg.