Tragus og 7 mm tunnel Þarsíðasta laugardag skaust ég til Sessu og Tattoo&skart og léta hana stinga mig tragus! :)
Ég var með tragus fyrir en ég fékk svo heiftarlega sýkingu að ég þurfti að taka lokkinn úr, heyrði varla lengur með eyranu..
En þegar hún stakk þá var það aðeins verra en þegar það var skotið, en eftirá var það eitthvernveginn betra samt, ég bólgnaði svo mikið upp þegar það var skotið, en ég bólgnaði bara ekki neitt núna :) ekkert smá sátt :) svo líka þá hef ég bara heyrt góða hluti um hana, þannig að ég var eitthvernvegin EKKERT stessuð þegar ég settist í stólinn… ekki einusinni lítið :)

Keypti líka bpa sem ég er búin að vera að bera á kvölds og morgna síðan ég fékk þetta og held ég að þetta sé barasta besta efni sem ég hef fengið á göt :) næst stefni ég að 4 lobe fyrir ofan tunnelið vinsta megin (þetta er vinstra eyrað) og kannski antihelix og inner counch held ég að hitt heiti :) svo í hægra eirað ætla ég að fá 3 lobe fyrir ofan tunnelið og svo helix og eitt gat sem er svona á milli helix og lobe, svona frekar miðlægt :)

En takk fyrir lesninguna og að skoða myndina :) ;*
sex is an emotion in motion