Vinstra eyrað mitt Þetta er vinstra eyrað mitt.
Tvö helix göt, tengd með gormi, 14g. Ég elska þessa teninga, er líka með einn þannig í augabrúninni.
Svo er snepilsgat, sem flakkar á milli 16g og 14g.
Fyrir utan þessi er ég með í augabrúninni og tvö snepilsgöt í hægra eyra. Bráðum bætast við gat í tunguna, eitt í viðbót á hægra eyra (verður líklegast helix, en samt kannski nær höfðinu), og í fjarlægri framtíð fæ ég mér í naflann og kannski geirvörtu.