Nokkrar myndir Jæja hérna eru nokkur myndir sem ég hef verið að safna og líst vel á þær allar..

Nú langar mig til þess að spyrja ykkur kæru hugarar hvaða mynd líst ykkur best á? Bara svona til þess að sjá skoðanir ykkar og hvernig aðrir sjá þessar myndir.

Þarf kannski ekki að taka það fram að ég er ljón í stjörnumerki. Ég myndi fá mér þessa mynd á herðarblaðið eða á milli herðarblaðanna.

Svo er köngulóin þarna sem auka. Ætla pottþétt að fá mér hana.

Endilega segið mér hvað ykkur finnst:)