Pegasus Þetta flúr ákvað ég á no time.. 12. mars 2002 fór ég og fékk mér gat (í vörina minnir mig) hjá Sverri og hann sýndi mér þessa mynd (annaðhvort teiknaði hann hana eða einhver vinur hans, man ekki alveg).. Mér fannst Pegasusinn svo rosalega flottur og ákvað að láta bara flúra hann á mig, sem og Sverrir gerði ;) Sé sko ekki eftir þessari fljótfærni í mér núna! :þ Ástæðan fyrir hesti er sú að ég á hesta og er mikið fyrir þá líkt og fleiri í fjölskyldunni minni :) Svo finnst mér þessi mynd alveg geggjuð!! Kemur mjög vel út þar sem hún er á vinstra herðablaðinu á mér …