Englar og Djöflar Halló :)
Ég er tiltölulega ný í tattú bisnessnum (er með tvö) og á meðfylgjandi mynd sést nýjasta listaverkið sem var gert á mig á seinasta Tattoo Festival af Sinnes Dan. Verkið fann ég af tilviljun þegar ég var að skoða á netinu, og eins og sést er þetta bland af því sem einkennir engla og djöfla. Þetta er staðsett á mjóbakinu á mér og tók svona 35-40 mínútur að gera. Mér þætti mjög gaman ef þið gætuð komið með gagnrýni, sagt mér hvað ykkur finnst og svona. Þetta virðist vera pínu skakkt en er alveg nákvæmlega staðsett, ég er bara svona skökk ^^
God made me an atheist. Who are you to question his wisdom?