Sæl veriði, ég er frekar mikill viðvaningur þegar það kemur að þessum málum. Ég átta mig á því að verðið er mismunandi eftir því hjá hverjum maður fer en ég er bara að tékka hvort einhver viti verðið u.þ.b.

Þetta er ljóð á íslensku sem fer á framhandlegginn, 8 línur og rúmlega 3-4 orð í línu. Þetta á ekki að taka allan framhandlegginn eða neitt slíkt.

Veit einhver snillingur hvað verðið á þessu er rúmlega, svo hefði ég ekkert á móti því ef einhver gæti bent mér á ágæta stofu, þarf ekkert að vera besta stofan, þarf bara einhvern sem veit hvað hann er að gera og getur framkvæmt beiðnina.