Mig er búið að langa lúmskt í tunnel í dágóðan tíma og er að velta fyrir mér að láta bara vaða.
Það sem ég skil ekki er hvernig maður byrjar? Ég er með göt í sneplunum eftir byssu í skartgripaverslun, hvað svo? Hvað geri ég til að byrja að stækka gatið?
Eða þarf ég kannski að vera með stærra gat fyrir?

Ég sé að flestir virðast vera að gera þetta sjálfir í sturtu og ég held að ég myndi vilja gera það þannig, er ekki með háan sársaukaþröskuld :p

Bætt við 12. apríl 2010 - 21:47
Ok, ég fór og fann ónotaða tungulokka og náði að troða í gegnum hægra gatið. Það var EKKI gott!
En mér er ekki að takast með það vinstra, var alveg komin með hann slatta inn í en fann ekki útganginn aftan á sneplinum :p
-Það er snákur í stígvélinu mínu