Ég er að fara að fá mér tattoo í Mars hugsanlega og langar að fá LOVE á úlniðinn á mér.
Vitnað í To Write Love On Her Arm samtökin gegn þunglyndi,einelti, “self-harming” og sjálfsvígum hjá unglingum.
En já, ég er búin að vera að leita að “fonti” mjög lengi eða letri á stöfunum. Langar í eitthvað flott en er ekki með of stórt pláss svo ekki beint mikið skraut.

Það sem ég hafði í huga var eitthvað líkt og “Old English Text MT” í Paint/Word en mér finnst ‘V’ið einhvernveginn svo asnalegt >.<
Er einhvern með hugmyndir? það væri vel þegið!