mér vantar hjálp. ég hef ákveðið að fá mér tattú. aðeins 1, annað hvort á öxl eða bak (eða því svæði, segjum frá öxl að öxl, allt bakið þar er option). ég er hinsvegar ekki búinn að ákveða hönnunina. ég er ekki að fara að fá mér það nærri því strax, ætla að leifa hugmyndum að meltast aðeins, en það sem ég væri til í er að ef að þið gætuð bent mér á einhverjar hugmyndir, eitthvað sem ég get notað sem byrjunarpunkt.

ég hef ákveðið að þemað í tattúinu mínu á að vera ásatrú, tolkien (mikill tolkien maður) eða fönix kemur líka sterklega til greina einhversstaðar þarna. það á ekki að vera mjög stórt og ég þarf að reyna að finna stað sem að það á eftir að líta vel út á þó svo að ég massi mig upp eða horist eða hvað í fjandanum sem á eftir að gerast við líkamann minn.

allar hugmyndir, myndir og uppástungur vel þegnar. ég þarf líka smá info um tattústofur. hvaða flúrari er sá besti sem ég get komist í samband við (tattúið endar kannski frekar flókið og ég er frekar til í að borga meira fyrir að láta einhvern algerann fagmann gera það)