Þannig er mál með vexti að ég ætla að fá mér industrial fljótlega.
Ég á tvo pinna. Annar smellpassar í eyrað eins og industrial gatið á að liggja, og gefur pínulítið pláss eftir sitt hvoru megin við eyrað. Hinn er miklu lengri, hátt í 6-7 cm á lengd, myndi hennta rosa vel í vertical industrial.
Mín pæling er, hvorn ætti ég að nota sem byrjunarlokk?
Lengri lokkurinn myndi náttúrulega gefa miklu meira pláss fyrir eyrað að bólgna, en hann er rosalega ljótur í eyranu, og rekst mjög líklega alltaf í húðina við hliðina á eyranu, sem er pirrandi. Hinn myndi væntanlega smellpassa í óbólgið eyra, en spurning hvort hann gefur nógu mikið eftir ef að eyrað bólgnar mikið.

og já, ég veit gatari myndi nota tvo litla lokka sem byrjunarlokka, en ég er stödd út á landi (engin lokkabúð) og á ekki svoleiðis lokka.
We're all mad here